Fortíð 9 1. Hrafnar Færa þeir fréttir úr öllum áttum. Um Miðgarð ferðast frá morgni og uns kveldar. Þeir gæddir eru máli að gjöf, Hrafnaguði f´ra. Svipast um úr lofti og frá jörðu niðri, með blóði drifnar klær, svartar vættir Óðins. 2. Hugur Nú leitar, brýtur og reikar, minn hungraði heimsmyndar hugur, því fávis tunga án máttar hans mælir. Þröngar dyr til frelsisins opnast með fórnum. Hugur sjálfstæðis aðskilur sig frá undirgefnum peðum valdatafls. Tálsýn ein er þeirra sérhvert val. Lærdómurinn liggur grýttum vegi á, sem feta þarf án andans nautna. Nú leitar, brýtur og reikar, minn hungraði heimsmyndar hugur, því fávis tunga án máttar hans mælir. Ég ferðast. Svo lengi sem ég man hefur hann barist þungum þönkum í. Ungur, gamall, í fylgd og einsamall. Morgundagins lof glepur máttlausan manninn. Við regnbogann hann eltist, að eilífu nafnlaus. Með hjartanu byggjum við eigin brú og yfirstígum óttann. Yfir fjöll, hjarn og mjöll ég fór en fékk þó ei svörin öll. Vits er þörf þeim er víða ratar. 3. Nornir Koma árstíðir, kemur von. Kemur dauði, kemur sorg. Örlög Asks, örlög Emblu, liggja nú í systra höndum, sem enginn sér og enginn veit, ofin duldum nornaböndum. Urður, Verðandi, Skuld. Urður, Verðandi, Skuld. Reið þar Óðinn hesti á, áttfættum á þeirra fund. Birtu honum tíðir allar, Urður, Verðandi og Skuld. Spinna þær örlög. Spinna þær farveg. Skera á aldur. Skera á líf undir miðjum Yggdrasil. Koma árstíðir, kemur von. Kemur dauði, kemur sorg. Örlög Asks, örlög Emblu, liggja nú í systra höndum. Verður margur Hel að bráð. Köld þau eru, kvennaráð. Urður, Verðandi, Skuld. 4. Viska Aflífaður í Vanheimi og til Ásgarðs sendur var, hinn vitri sá er Mímir heitir. Engan búk hans höfuð bar. Hóf þá Óðinn seið sinn sterkan, lærðan dóttur Njarðar af. Hann endurfæddi hug og mál, það dýpri innsýn af sér gaf. Í visku felst þjáning. Í visku felst aldur. Í visku felst dauði. Í visku felast fórnir. Af jötnakyni er völvan forn, úr undirdjúpum ættir rekur. Úr ríki dauðra og heimum níu. Sá hún vítt og um vítt, og veröld hverja. Óðni færði hún Völuspá. Í visku felst þjáning. Í visku felst aldur. Í visku felst dauði. Í visku felast fórnir. 5. Leit Er það sem er, verður og var eitt varanlegt, endanlegt svar? Er þetta allt sem birtast vill mér, hvert sem ég lít, hvernig sem fer? Ég leita og leita og allri hjálp neita. Ég hverf þér, ég hverf þeim, inn í eigin hugarheim. Leynast ei dýpri viskurætur milli himins og jarðar, dags og nætur? Nú sæki ég enn á ókönnuð mið. Enginn má leiða né leggja mér lið. Ég leita og leita og allri hjálp neita. Ég hverf þér, ég hverf þeim, inn í eigin hugarheim. Leynast ei dýpri viskurætur milli himins og jarðar, dags og nætur? 6. 9 Veit ég að ég hékk í vindasömu tré daga níu, nætur níu. Af spjóti helsærður og gefinn sjálfum mér. Í því tré er enginn veit hverra róta af rennur. Ég hafnaði brauði, ég hafnaði horni. Freistingasigur sendi mig niður í sköpunardjúpin, heima á milli. Sérhvern hver öðrum sársaukafyllri. Gegnum veraldarloftin, æpandi! Ég tók þar upp rúnir. Féll ég svo þaðan aftur til sjálfs míns. 7. Galdur Í undirmeðvitund leitum við leiða að opnum dyrum dýpri skilnings. Galdur, svo fjarlægur, með tímanum dofnar. Galdur, svo viðkvæmur, í tengingu rofnar. Er skilningur dýpkar og hið áður óþekkta verður öllum þekkt er merkingin glötuð. Galdur sem dvínar og tapar formi. Galdur sem gleymist í tímans stormi. 8. Rúnir Með hinum föllnu milli heims og helju, ég hvorki svaf né vakti. Veröldin breytti lit er aftur ég sneri, með galdri ristar rúnir. Fé. Úr. Þurs. Óss. Reið. Kaun. Hagall. Nauð. Íss. Ár. Sól. Týr. Bjarkan. Maðr. Lögr. Ýr. 9. Hof Svo lengi mun ég ríkja sem menn mig muna, orð mín geyma og gildi heiðra. Í fornum sálum finnast hof. Djúpt í hjartarótum, sem og jörðu í. Og aftur munu hofin rísa.