Auðn Auðn 1. Klerkaveldi Í landi köldu og gráu Veiki herjar á þeir örfáu sem sáu Fara ekki á stjá Fnykur er af likþráu skýktu holdi á Hýrast um á lofti háu Úr kirkjutunrni stara á Mannfjöldann að engjast um Enga hjálp að fá Á vegum guðs þeir loka dyrum Skellt í lás og slá Klerkaveldi, Kristin trú Neitar öllum sökum Veikindi og viðbjóður Ráda menn af dögum Upphafnir af helgileik En inn kraumar illska Lygastofnun, sögufölsun Kirkjan tekur engum sönsum Í húsasundum, skúmaskotum Myrkir menn sem leggja á ráðin Uppreisnin er nú hafin Brjótum niður dyrnar Steypum þeim af stóli Helgilandið hrunið er Uppreisnin yfurstaðin 2. Undir blóðmána Undir blóðmána Bölsýni og glötum Kuldi, myrkur, sviksemi Hvetja menn til ódáða Rauður máni fyllir húmid Svartri hulu umbreytir Mánaskinið lýsir Því níðingsverki er framið var Læðist að mér nóttin svarta Hamast um í brjósti hjarta Leita skjóls, upp til fjalla Háa rödd ég heyri kalla Blindaður af stormi er Engin sér Hver þar fer En ég veit Hvað er á eftir mér... Undir blóðmána Vindurinn hvín Myrkrið tekur völd dauðinn bíður mín Leita skjóls til einskis Því frost og fimbulvetur Allt eins líf mitt tekur 3. Sífreri Freðin foldin Köld er sem ís Eilífur vetur aftur nú snýr Ekkert að hafa Matur er rýr Skógarnir helfreðnir fjöllin sem hrím Dýrin öll farin og hér geisar stríð Í freðinni veröld sem sólin ei skín Norðanvindar sækja nú að Grimmdarvetur genginn í garð Mennirnir berjast Vinabönd skerðast Fátt eitt er eftir og jörðin mun eyðast Fennir í sporin og þagnar þá allt Í freðinni veröld sem sólin ei skín SÍFRERI Freðin foldin Köld er sem ís Eilífur vetur aftur nú snýr Ekkert að hafa Matur er rýr Skógarnir helfreðnir fjöllin sem hrím Dýrin öll farin og hér geisar stríð Í freðinni veröld sem sólin ei skín Norðanvindar sækja nú að Grimmdarvetur genginn í garð! 4. Feigð Finn ég nálgast fimbulvetur Frost í huga sest er að Rýni kalt í rúnaletur Reimt er hér á þessum stað Hamast um í brjósti hjarta Hyldýpið mig kallar á Sækir að mér nóttin svarta Sjá mig augu köld og blá Komdu til mín komdu nær Kaldir fingur á mig benda Ég er dauðinn komdu til mín komdu nær Komdu... Biðin er á enda Saklaust barn ég sé í fjarska Sífllt færist undan mér Augun eldur síðan aska Engin grið að finna hér Finn ég nálgast fimbulvetur Frost í huga sest er að Rýni kalt í rúnaletur Reimt er hér á þessum stað Komdu til mín komdu nær Kaldir fingur á mig benda Ég er dauðinn komdu til mín komdu nær Komdu... Biðin er á enda 5. Landvættur Kaldur eins og norðanvindar Í landi blundar bölvættur Snjórinn, audnin, fjallatindar Vakna þú nú landvættur Næturkuldi napur er Nýstir inn að beinum Vættur viltu vísa mér að þínum fornu leynum? Steypist yfir mannheima Sundrung, stríð og vonleysi Illir menn sem hafa að geyma Sturlun, synd og siðleysi Næturkuldi napur er Nýstir inn að beinum Von með vindi burtu fer Vættur rís úr leynum Undankoma engin er, Mótstaða til einskis Manna veldi falla senn Vetur tekur yfir bölvættur Næturkuldi napur er Nýstir inn að beinum Von með vindi burtu fer Vættur rís úr leynum Vakna þú nú 6. Þjáning heillar þjóðar þjóðin er kvalin Útvalin Til að þjást Misþyrmt marin Sorg og ótti Úti um allt Ýtt í svaðið Niðurbrotin Þjóðarsál Að þrotum komin Allt sem við byggðum Orðið að engu Þar sem var ljós Myrkur nú er líkaminn heill Sálin tóm skel Hlýjar minningar Frjósa í hel Niðurbrotin Þjóðarsál Að þrotum komin 7. Auðn Einn ég þá geng Auðnina um Leitandi svara Hvað er það sem áfram dregur Hver er viljinn, hvar er þráin Af Hverju er ég Finn ekkert nema Hatur innra Er það eina leiðin Undan þessum kalda stað? Engan skildi undra Áð auðnina kjósi Maður á flótta Komdu Finn ekkert nema Hatur innra Komdu með mér Í auðnina Upplifðu hatur Eins og aldrei áður Komdu til mín Með þitt Sálatetur Lengi leitað Ekkert fundið Dag og nótt ég reika Einn um eyðilendið