skalmold Me Vttum 1. Að Vori Þórunn Auðna, þá hún fæddist þungt var yfir Ísafold Eymd sem allt um lá og læddist loftið sverti, vötn og mold Myrkur að vori á Melrakkasléttu Meybarn var borið í óþökk og nauð Fátæk og horuð hún fæddist, með réttu Fyrst voru sporin öll hamingjusnauð Þakkir fær sá er Þórunni sendi þakkir af einingu Ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi barnið með meiningu Þórunn Auðna, þá hún fæddist þeyr blés yfir dal og tún Varla neina vá hún hræddist varin undir galdrarún Þakkir fær sá er Þórunni sendi þakkir af einingu góðar Ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi barnið með meiningu þjóðar Fyrst varð hún móðurlaus, föðurlaus siðan Fjöllin og gróðurinn tóku að sér ljóshærða flóðið með lokkinn svo friðan læst hennar blóðbönd í örlagakver Ég veit ekki hvar hún æskunni eyddi eða hvar hófst hennar ferð Né hvað það var sem götuna greiddi gaf henni bogann og sverð Þórunn Auðna, þá hún fæddist þa blés von um Íslandsströnd Neistinn fyrir norðan glæddist nytsamleg sú hjálparhönd Þórunn Auðna, þá hún fæddist þustu vár um lönd Vigaklæðum vösk hún klæddist vættir treystu bönd Bjargvættur okkar enn barnung að aldri borin á Melrakkasléttu Vorið sem Þórunn er valin, of Baldri verndari Íslands með réttu 2. Með Fuglum Fugl er stærstur Fróni á, fjallstindanna milli ná vængjafjaðrir. Vindinn aðrir vinir honum kljúfa hjá. Kornung þegar komu fyrst kynjaskrímsli, svöng ég þyrst. Fjalls- afþaki flang á baki fuglinum er ríkir nyrst. Blésu hana bitrum móð barði frá sér Íslands fljóð. Þegnar sváfu, þessa gófu Þórunn fann er leit hún blóð. Fyrsta stríð af fjórum vannst, fréttist víða, sagan spannst. Þó í ljóðum þessum góðum Þórunn hvergi fyrir fannst. Með fuglum. Með fuglum. Þórunn hvergi fyrirfannst. Með fuglum. Með fuglum. Þín var ævin þréttán ár þegar först með fuglum, fálkum, örnum, uglum. Þú var himinn þungur, grár, þegar först með fuglum. Þórunn var orðin Þréttán ára, þegar hún för með fuglum. Barðist við djöfla og fjanda, fjára, þegar hún för með fuglum. Skammt milli gleði -- og tregatára þegar hún för með fuglum. Lærði að svo myndi lifið klára, þegar hún för með fuglum. Með fuglum. Með fuglum. Þegar hún för með fuglum. Með fuglum. Með fuglum. Þegar sváfa flestir fast fuglar vörðu björgin. Sökkva lik er sameinast sverðin fyrir Fjörgyn. Nötraði allt Norðurland, níð skal vondum banna. Treysti verðmætt vinaband vættur meðal manna. 3. Að Sumri Allt þar féll í ljúfa löð, landið friðsælt, gjöful tröð. Bændur, hjú og börnin glöð. Beið ein þar snót og þagði. Friður geymdi fold og menn, fimm ár liðu, nokkur enn. Land undir fót þá lagði. Land undir fót þá lagði. Enginn sína ævi veit. Áði hún í Mývatnssveit, áfram yfir landið leit: "Lengra ég þarf að halda!" Ung hún steig á Austurland, eygði skóg og svartan sand. "Illt skal með góðu gjalda, illt skal með góðu gjalda." Sjónarspil við dalsins dyr, dimmu kljúfa sólstafir. "Heitböndin munu halda." Sitthvað slæmt í lofti lá, lamdi brimið klettatá. "Illt skal með góðu gjalda ef fjendur af Gerpinum sjást. Goðin þeim hjálpi sem finnast og nást." Enga gísla! Enga gísla! "Móti skal tekið af mikilli heift, mótherjum bannað sem vinum er leyft." Þórunn gaf austrinu bein sín og blóð, beið þess að fylgja í vættanna slóð. Færum þeim þakkir sem fórnuðu sér, fóru gegn ógnar- og óvinaher. Fuglarnir syngja og fljótið er tært, fjögur að nóttu og sólin skín skært. Engin er hindrun og allt virðist fært, ekkert fékk Þórunni bugað. Lækurinn gljáfrar er líður hann hjá, landið er allt ósköp fallegt að sjá. Barnið því gleymdi sem bjátaði á, bara að það hefði dugað. Sumarið kveikir í bróstunum bál, brosir og fagnar hver einasta sál. Mundu að tileinka mönnunum skál, mikið við öll höfum þolað. Miðnætursólin er miðpunktur alls, móarnir loga frá ströndu til fjalls. Kveiknaði ást milli hennar og hals, henni fékk ekkert út skolað. 4. Með Drekum Hátt á vængjum vættur, veru fylgja herir. Yfir horfir hafið, hendast nærri fjendur. Skríða yfir Skrúðinn skrælingjar í brælu. Ljótir á oss leita. Landið er í vanda. Barðist fólk á fjöru, fór á höfðann Þórunn. Bogi gat ei geigað, grenja undan frenjur. Gjalda ógn með eldi, yfir allt sem lifir. Hetjur böls og haturs hrekjast undan dreka. Um fór, ógnandi stór. Álengdar stóðu þá Bragi og Þór. Hart skal mæta hörðu. Blés þá brandinum sá. Brunnu þar allir við Sandvíkurá. Jöfnum þá við jörðu. Jöfnum þá við jörðu. Eldraun Auðna þessa þreytti, Þórunn með sitt sverð og skjöld. Nóttin til hins betra breytti, blóðgaði hún drýslafjöld. Misstum bæði vár og vini, var það blóðrauð sumarnótt. Rétt í tungls- og röðulsskini ráðast kvæði drótt. Bliksvart blóð, brennheit glóð. Stelpan stóð, stjörf og hljóð. Þeir komu á skipum, þeir komu úr lofti, í kraumandi veðri og sjó. Þúsundum saman með þrumandi öskri og þefjan sem vit okkar sló. Vopnlausir flestallir, vargar og skepnur, sem vilja með kjafti og klóm rífa þig sundur og ráðast á næsta með rauðhlaupin augun og tóm. Blésu þeir eldi á bátana okkar, við börðumst á móti með heift. Verk þeirra manna sem ganga á glapstigum gátum við alls ekki leyft. Dýrkeyptur sigur en drekar og menn sýndu duginn sem skilaði þeim réttinum að geta ráfað að heiman og ratað á nýjan leik heim. 5. Að Hausti Tveimur jafnfljótum Tiplar yfir sandinn Landið suður lokkar Tíminn hálfnaður Sömuleiðis vandinn Andið svala okkar Enginn þekkir til Gjörða eða göngu Vona sinna valdur Gömlu konunnar Endur fyrir löngu Kona vindur kaldur Skórinn Gatslitinn Skörð eru í kápu Lækir frosnir leka Skemmir göngu með Sögum eða drápu Flækir ísinn fleka Reynslan Æskune Rúði inn að skinni Tapa laufin trjánum Rífur gömul sár Slitrótt bernskuminni Gapa klettar gjánum [Chorus:] Það var haust, við þögðum Allt vort traust, við á þig lögðum Endalaust en lítið sögðum Það var haust, við þöðum Ferðast einsömul Fararskjótinn enginn Gjánum klettar gapa Félagsskapurinn allur Úr sér genginn Trjánum laufin tapa Kaldur vindurinn Klónum sínum sekkur Fleka ísinn flækir Krækiberjablá Lækjarvatnið drekkur Leka frosnir lækir Liðið sumarið Lækkar sól og dofnar Kaldur vindur kona Leggst þar undir stein Örmagna og sofnar Valdur sinna vona Leikur andlitið Ljósrauð morgunglæta Okkar svala andið Líkt og Brynhildar Goðin hennar gæta Lokkar suður-landið [Chorus:] Það var haust, við þögðum Allt vort traust, við á þig lögðum Endalaust en lítið sögðum Það var haust [2x], við þögðum Það var haust, í sárum Allt vort traust, við á þig bárum Endalaust en lítið sögðum Það var haust [2x], við þögðum Það var haust, í klettum Allt vort traust, við á þig settum Endalaust en lítið sögðum Það var haust [2x], við þögðum [English translation:] Striding quick across the sands The south, it calls us Half our time and half our trouble stands Fresh winds befall us No-one knows where fate will chime What your destiny holds For the crone, once upon a time Woman, wind so cold Shoes worn, cape is frayed Frozen streams are weeping Foul path with rhymes is laid Tangled floes are sweeping Fields of innocence No more than an ember Trees will lose their awning Old wounds opened by What she will remember Mountain’s wounds are yawning Leaves they turned, no word spoken Trust unearned, time unbroken Silence learned, faith it’s token Leaves they turned, no word spoken Lonesome traveller, searches out her way Mountain’s wounds are yawning No-one next to her, nothing more to say Trees will lose their awning Wind-claws rend her flesh, silent is her scream Tangled floes are sweeping Blue hands trembling, drinking from a stream Frozen streams are weeping Summer’s day is gone, sun is sinking low Woman, wind so cold Lays down by a rock, sleeping in the snow What your destiny holds Red dawn strokes the face of a frozen sleeper Fresh winds befall us Just like Brynhildur, the Gods will be her keepers The south, it calls us Leaves they turned, no word spoken Trust unearned, time unbroken Silence learned, faith it’s token Leaves they turned, Leaves they turned, no word spoken Leaves they turned, turned to cinder Our trust burned, you the tinder Silence learned, faith it’s token Leaves they turned, Leaves they turned, no word spoken Leaves they turned, rocks their landing Our trust spurned, you left standing Silence learned, faith it’s token Leaves they turned, Leaves they turned, no word spoken 6. Með Jötnum Æsist jötunn, eðlishvöt oss frá glötun bjargar. Rífur göt á feld og föt, flensar kjöt og sargar. Skriðjöklar gnauða og skrafa í myrkrinu, skjálfti um höfðana fer. Koma þau skríðandi úr kafi, kafloðin skrímslin úr hafi. Bryðjandi grjótið og bergið og þúfurnar, brestur í öllu sem er. Stætt er þá engum á ströndum. Storknað er blóðið á höndum. Ver oss vökull Vatnajökull. Dansar dátt mey. Dyrhólaey. Vaknar í látunum vinur úr dvala og veður í óvinaskaut. Hann er með konu á herðum, hér vinnur bóginn á sverðum. Stafnum í jörðina stingur hann hamrammur, stökkva þá dýrin á braut. Brotnaði risinn úr bergi, berserkur hvikar nú hvergi. Skelfur jörð. Skelfur þar jörðin er skellur skaftið á hraunlagðar hellur. Stendur vörð. Stendur hann vörð þegar steðjar að hætta. Hann stendur með okkur og fellur. Falla lauf. Falla þá laufin að foldu. Frjósa lík saman við moldu. Birtan dauf. Birtan er dauf þegar bardaga lýkur. Þar bíða þau tvö sem að þoldu. Brotnar sjór. Brotnar þá sjórinn á bergi, bátarnir þoldu víst hvergi. Hverfur mór. Hverfur af mórinn en hvitslegin björgin víst hvíla á eldgömlum mergi. Kólnar blær. Kólnar svo blærinn og kreppir. Kverkunum risinn ei sleppir. Losna klær. Losnar um klær þegar lífið út fjarar og Loki þá óvininn hreppir. Halda bönd. Halda þau bönd er við hnýttum, heiðrum þær stundir er nýttum. Jötnahönd. Jötna- með hönd var þar járnstafur reistur, í jarðvegi lenti hann grýtt um. Sofna börn. Sofna loks börnin er sekkur sólin við fjarlægar brekkur. Bæjartjörn. Bæjarins tjörn tekur blásvartan skugga er bergrisinn úr henni drekkur. Jötnahönd, járn- með vönd. Jökull skelfur, freyðir strönd. Jafnan halda engin bönd. Jötnahönd, jötnahönd. Jötnahönd, járn- með vönd. Jörðin opnast, sökkva lönd. Jakar íss við sjónarrönd. Jötnahönd, jötnahönd. 7. Að Vetri Vargsgól, vetrarsól, Vesturland í kringum jól. Kolsvart, hjarnið hart, himinhvolfið lýsir okkur stjörnubjart. Köld lönd, klakabönd, klífur fjallið loppin hönd. Snöggt hlær snarpur blær. Það snjóar, það snjóar, það snjóar. Við hnjúk, vaðmálsdúk vefur að sér, dulan mjúk, hlýtt skinn, hlífir kinn. Hamast við að komast yfir fjallgarðinn. Átak, bogið bak, býr sig undir vopnaskak. Snöggt hlær snarpur blær. Það snjóar, það snjóar, það snjóar. Gengur yfir gamalt hraun. Gista skúta þar á laun, þeirra mikil þrek- er raun, útilegumenn. Horfa eftir henni burt, héla frystir visna jurt. Eftir henni aldrei spurt. Það snjóar, það snjóar. Snjóar óðum á snjáðan veg, snögg er Þórunn og vörpuleg. Snjóar, hvernig sem snýrðu þér, snarlega yfir fljótið fer. Snjóar nú yfir sneiðinginn, sneisafullur er dalurinn. Snjóar, þótt komi snemma vor, snörla vitin og vella hor. Snjóar ákaft Snæfellsnes, snarpur vindur um andlit blés. Snjóar, þar sem við snertum Hel, snjakahvítt hennar hugarþel. Snjóar og hvergi snarkar glóð, snauðir deyja er frystir blóð. Gömul kona, grá og hokin, gengur ein í kafaldsbyl. Hárið sýlt og hettan fokin, hún kom níður Stekkjargil. Gengur sér til gagns og hita, gamlir fætur virðast strita. Ferðir hennar fæstir vita. Það snjóar! Hennar siður, Friggjarfriður, fótaskriður rennir niður. Brakar viður, stafur styður. Stíginn ryður, gæfusmiður. Þórunn biður Lofn um lið. 8. Með Griðungum Stærst er þetta stríð af öllum, standa þeir frá sjó að fjöllum. Saman völdum sigraköllum, sundruð öll sem eitt við föllum. Lýkur stríði, lokast hringur, lítill fugl með trega syngur. Tíminn niður stafnum stingur, stendur vörðinn ferfætlingur. Fugl í norðri. Dreki í austri. Jötunn í suðri. Griðungur í vestri. Fjórða sinnið og fullreynt loks, færðist lokastyrjöldin frá heiði til vogs. Báru hvor aðra á banaspjót, báðar fylkingar, dýrt var það blót. Sótt var af hafi og sótt var af fjöllum, sótt var úr lofti úr áttum öllum. Í húfi var landið og heiður þjóðar, hópuðust kringum okkur vættir góðar. Griðungur í sjónum syndir, sækja á hann ljótar myndir. Rífa klær og tæta tennur, týnast líf er holdið brennur. Dugar meðan dagar líða, dreki, fugl og jötunn bíða. Látrabjörgin lemja öldur, laskað sverð og brotinn skjöldur. Þórunn barðist uns þrótturinn hvarf, þarna hún kláraði ævistarf. Studdu við bak hennar staðfastur vættir, svo standa á frjálsri grundu þú mættir. Ég bið að þú hafir í brjósti þér myndir, hún bjargaði okkur og afmáði syndir. Gleymdu því ekki hvað gerðist, því sprundið er glatað og hvergi í ljóðstafi bundið. Griðungur og gömul kona gæta strandar, lífs og vona. Bogastrengur bítur fingur, blóðið fossar, örin stingur. Barðist þorunn síðsta sinnið, sigur grófst í þjóðarminnið. Herkvaðningin herðir trúna. Hringnum verður lokað núna. Sveitin þagnar, sverðin liggja ber. Svefninn langi bíður eftir þér. Klakabönd og kynjamyndir, kaldur vindur hvín. Myrkrið dansar, máninn á þig skín. Vættir gráta, vetur færist nær. Vindur kólnar meðan syrgja þær. Frystir allt og fjallið litast fannhvítt eins og lín. Myndast skuggar, máninn á þig skín. Þórunn Auðna, þakkarskuldin er þeirra sem að lifa, sorgin sker. Heljarköld í húminu er hinsta stundin þín. Meðan deyrðu, máninn á þig skín. Snæbjörn Ragnarsson — Bass Björgvin Sigurðsson — Vocals, Guitars Gunnar Ben — Keyboards, Vocals, Oboe Baldur Ragnarsson — Guitars, Vocals Þráinn Árni Baldvinsson — Guitars, Vocals Jón Geir Jóhannsson — Drums, Vocals